Stólpi fyrir Windows Útgáfa 2010.1
Gildir frá 1. október 2009
Allir skuldlausir viðskiptavinir með viðhaldssamning fá senda nýja útgáfu einu sinni á ári. Kerfið kemur á geisladiski sem einungis þarf að setja í geisladrifið og skrá meðfylgjandi lykilorð. Nýja útgáfan keyrir sig inn sjálf og engin röskun verður. Lesið leiðbeiningar á innri vef.
Munið að taka afrit áður en breytingar eru settar inn og fyrir golfklúbba er nauðsynlegt að skrá í Stýriupplýsingum í Félagakerfinu Einkenni golfklúbbs og Lottónúmer eftir að nýja útgáfan er komin inn.
Aðalvalmynd og Almennt.
- Nýtt útlit og logo þegar kerfi eru ræst. Munið að ef Access er ekki til staðar á tölvunni þarf að fara í Stýriupplýsingar og breyta yfir í Eldri valmynd.
- Útprentun á strikamerki fyrir vörur – ný stærð á límmiða
- Lykilorð fyrir starfsmann í flipa Annað til að samþykkja reikninga
Fjárhagsbókhald.
- Rekstrarreikning má fá eftir deildum, allt að 6 deildir á sama blaðinu.
- Í rekstrarreikning má senda gögn í Excel eftir deildum, verkefnum og mánuðum.
Með þessum upplýsingum er auðvelt að útbúa OLAP-kubba fyrir þá sem hafa smá þekkingu á Excel.
- Í dagbókaskráningu er hægt að velja um nýja lykilhegðun: Deildir – flýtir fyrir þeim sem hafa deildarskipt bókhald
- Staða reikningslykils sést í dagbókarskráningu undir nafninu
- Auknir valmöguleikar í listun reikningslykla
Skuldunautar.
- Bæta inn greiðsluskilmálum í lista Gjaldfallið og ógreitt
- Láta bendil fara beint í nafn þegar smellt er á nýskrá. Á einnig við í félagakerfinu.
- Nýr aldursgreindur samantekinn skuldalisti.
Lánardrottnar.
- Nýtt samþykktarkerfi fyrir reikninga. Verður sent til þeirra sem kaupa.
- Lykilorð fyrir hvern starfsmann sem samþykkir reikninga
- Flokkun reikninga eftir stöðu: Ósamþykkt – Samþykkt – Hafnað
- Listi yfir reikninga eftir stöðu
- Starfsmaður samþykkir reikninga og uppfærir í Skráning reikninga
- Laga skilaboð í Greiðsluaðlögun eftir dögum þar sem upp kom: Enter Parameter Value.
- Laga villu sem gat komið upp í Access 2007 þegar reikningar voru valdir til greiðslu.
Birgðakerfi.
- Verðmætauppgjör birgða betrumbætt þar sem eru margir lagerar.
- Breytingar þegar búin var til birgðaskráningardagbók fyrir talningarlista þannig að sama númer kemur a‘ðeins einu sinni þó svo margir birgjar séu skráðir fyrir vörunni.
- Hægt að leita eftir strikamerki í Viðhald birgða
- Þegar föst krónutala er notuð í stað prósentuálagningar þá er hægt að slá inn krónutölu.
- Svæði stækkuð fyrir vörunúmer og vöruheiti í Birgðaskráningu þegar felligluggi er opnaður.
Sölukerfi.
- Birta athugasemd í stað tilvísunar á skjánum. Þetta er hak í Stillingar 3.
- Dagsetning á vörufylgibréfi stækkuð, hún sást ekki alltaf öll.
- Ekki breyta verði á vöru þótti lýsingu sé breytt
- Í bifreiðakerfi er sjálfgefið að leita eftir fastnúmer þegar nóta er endurprentuð.
- Hafa umsjónarmann bíls á fremra blaði reiknings í bifreiðakerfi.
- Sýna greiðsluskilmála 2-4 á bifreiðareikningum
- Bæta Útlit reikninga 2 í Stýriupplýsingar til að geta prentað reikninga á öðru formi.
Launakerfi.
- Aðvörun ef launþegi er ekki með neinar lífeyrisgreiðslur.
- Hátekjuskattur, útreikningur – prósenta og viðmiðunarmörk skilgreind í Stýriupplýsingum.
Verkbókhald.
- Í hraðskráningu er sjálfgefið að nota útsölutaxta starfsmanns svo það þarf ekki alltaf að slá inn taxta.
- Taka út yfirlit með reikningi fyrir ákveðin reikning sem var gefinn út fyrir einhverjum tíma síðan.
- Leggja saman upphæða vinnu og efnis í reikningsgerð skv. tilboði.
- Hægt að velja starfsmenn þegar Sundurliðað yfirlit er prentað
- Starfsmenn sem eru hættir koma ekki upp í flettigluggum.
- Muna stillingar í verkbókhaldsskráningu.
Vinnuskýrslur.
- Aðvarað ef bókað meira en mánuð fram í tímann og einnig ef bókað er á annað ár.
- Tvö ný sniðmát þar sem hægt er að skrá eftir verknúmeri (rununúmer).
- Bendill færist alltaf í næstu línu við skráningu.
Félagakerfi.
- Prenta yfirlit félaga með mökum.
- Staðsetja bendil í Leitarlykli þegar farið er í Viðhald félaga.
Tollkerfi.
- Breyting á skuldfærslutilkynningu tollstjóra vegna breytinga á gjaldfresti.
Rafræn samskipti.
- Lesa XML innkaupareikninga frá Húsasmiðjunni.
|