| Tímavörður |
|
|
|
|
Boðnir eru fjölbreyttir möguleikar á tímaskráningum, s.s. handskráning eftir vinnuskýrslum, að láta starfsmenn skrá vinnuskýrslur sjálfir, stimpilklukka í tölvu, skráningastöðvar, nándarlesarar og Pocet-PC handtölvur með GSM eða GPRS síma til að senda vinnu- og efnisskráningar á milli staða. Stólpi fyrir Windows er með fullkomið stimpilklukku- og upplýsingakerfi fyrir starfsfólk, bæði fyrir vinnu-, tækja- og efnisskráningar. Kerfið reiknar út unnar vinnustundir eftir mætingareglum sem því fylgja. Auðvelt að laga að frjálsum vinnutíma og vaktavinnu. Vinnutíma starfsmanna er skilað inn í launakerfi, mælingakerfi og verkbókhald eftir því sem við á.LyklaborðskráningÍ einföldustu mynd er kerfið notað til handvirkra inn- og útskráninga og hægt er að nota lyklaborð tölvu. SegulkortalesariVið lyklaborð tölvu má tengja segulkortalesara sem hentar mjög vel til inn- og útskráninga. Nota má fyrirfram númeruð kort, sérhönnuð starfsmannakort eða greiðslukort. Við útvegum kortarekka fyrir segulkort. NándarlesariStarfsmaður ber segulkortið að tækinu og velur Inn eða Út. Stöðina má fasttengja tölvu og Stólpa fyrir Windows eða láta hana standa sjálfstætt, t.d. við starfsmannainngang. Við skráningu er notað segulkort. Hægt er að útbúa kort með nafni starfsmanns og eins má skrifa nöfn með glærupenna. Kort má geyma í kortarekka. Rafhlaða tryggir vinnslu í rafmagnsleysi. Nándarlesarinn er lítið tæki, ca. 18 x 10 cm sem fest er á vegg. Skráningar eru lesnar í stimpilklukkukerfið þar sem villuleit og útreikningur fer fram.StrikamerkjalesararStrikamerkjalesarar henta mjög vel við verkskráningu og er mikið notuð aðferð á verkstæðum og við framleiðslu. Stólpi gefur kost á prentun strikamerkja fyrir starfsmenn, verk og vörur. Verkbeiðnir í Stólpa má prenta með strikamerki sem auðvelt er að lesa. Skrá má viðskiptamann, verk, verkþátt, verklið og mælingu.SkráningastöðSérstök skráningarstöð t.d. frá Ottó B. Arnari eða Hugsklukkur má nota og hefur verið gerð tenging til að lesa bæði launa- og verkbókhaldsskráningar.Verkskráning með PC-PocketNotuð er lítil PC Pocket tölva með snertiskjá þar sem starfsmenn skrá nafn sitt og verk. Í lok dags eru skráningar sendar með tölvupósti en tækið hefur innbyggðan GSM síma. Á skrifstofunni er klukkukerfið okkar sem villuleitar og reiknar út vinnutíma starfsmanna eftir mætingareglum. Þaðan uppfærast vinnutímar í launakerfið og á verk. Um er að ræða sjálfvirkar tengingar sem skila kostnaðartölum réttum inn í sjálft fjárhagsbókhaldið. Betra gæðakerfi fæst varla og um leið sparar kerfið mikla vinnu og eykur öryggi. Kerfið er þróað og notað hjá BYGG ehf. og Þórtaki ehf.Vinnu, tækja- og efnisskráning með PC-Pocket GPRS símaÞetta er það nýjasta og besta. Tækið hringir beint í Stólpa þar sem það er beintengt með mjög ódýru símasambandi. Einungis er greitt fyrir það gagnamagn sem sent er. Hægt er að skrá á lyklaborð símans, snertiskjá eða með strikjamerkjalestri. Á skrifstofunni er klukkukerfið okkar sem villuleitar og reiknar út vinnutíma starfsmanna eftir mætingareglum. Þaðan uppfærast vinnutímar, efni og tæki í launakerfið og á verk. Betra gæðakerfi fæst varla og um leið sparar kerfið mikla vinnu og eykur öryggi. Kerfið er notað m.a. hjá Kletti ehf. og JS-hús ehf.Tíma- og verkskráningarkerfið með símaGerð hefur verið tenging við tíma- og verkskráningarkerfi þar sem sími er notaður í stað stimpilklukku. Starfsmenn hringja í tiltekið númer og fá boð frá símsvara um að skrá sig inn eða út úr verkum eftir aðstæðum. Kerfið er ekki háð tölvu eða tölvukerfi viðkomandi fyrirtækis á nokkurn hátt. Þannig geta starfsmenn skoðað eigin skráningu hvar sem þeir eru staddir og sent inn athugsemdir ef þeir telja skráningu ekki rétta. Kerfið heldur utan um veikindi, orlof og önnur slík réttindi starfsmanna. |