Hýsing Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Kerfisþróun býður viðskiptavinum sínum traustan og öruggan aðgang að upplýsingakerfum í gegnum hýsingarþjónustu. Í rúmgóðum tölvusal okkar sem er loftræstur og kældur með nýjustu tækni getum við nú hýst og rekið tölvuþjóna fyrir fyrirtæki og einnig þjónustur af ýmsu tagi t.a.m. lén, pósthús, skrifstofukerfi, afritunarþjónustu og síðast en ekki síst hýsingu á Stólpa.

Sérfræðingar Kerfisþróunar hafa margra ára reynslu af rekstri upplýsingakerfa og er vandlega hugað að því að til staðar sé dreifð og góð þekking, ásamt því að unnið sé eftir mótuðum ferlum.

Innifalið í hýsingu er t.d. vöktun, dagleg afritun, gagnavarsla, eftirlit miðlægs kerfis og umsýsla gagna þjónustukaupa. Vinna vegna aðgangsþjónustu og við miðlægt tækniumhverfi. Aðstoð vegna tæknivandamála sem rekja má til miðlægs kerfis. Innifalin eru öll leyfi fyrir stýrikerfi og vírusvarnir á miðlægu kerfi. Uppsetning á þeim útstöðvum og prenturum sem tilgreindir eru í upphafi.

 

Útvistun

Sveigjanleiki og stjórnun breytinga er lykilatriði í nútíma rekstri. Hjá okkur getur þjónustukaupi valið það þjónustustig sem hentar. Hægt er að byrja t.d. einungis með að skrifa reikninga, síðar er tekin upp launavinnsla eða bókhald, allt eftir hvað hentar. Flestir stjórnendur telja tíma sínum best varið með því að sinna kjarnastarfsemi fyrirtækja sinna en verja ekki of miklum tíma í bókhald eða aðra þjónustu þó nauðsynleg sé. Mörg fyrirtæki telja sig geta náð um 10-50% kostnaðarlækkun með útvistun. Það sem sparast er húsnæðis- og tækjakostnaður auk kostnaðar vegna launa starfsmanna með tilheyrandi þjálfunarkostnaði, veikindadögum og leyfum. Því er orðið algengara að leita til utanaðkomandi sérfræðinga í stað þess að byggja upp sérþekkingu á öllum sviðum starfseminnar. Með útvistun fæst dýrmætur stuðningur og aðhald frá utanaðkomandi aðila, minni fjárfesting, aukið aðhald og fastur fyrirsjáanlegur kostnaður í stað breytilegs kostnaðar.