| Markmið |
|
|
|
Stefna KerfisþróunarStefna Kerfisþróunar er að þróa bókhalds- og upplýsingakerfi fyrirtækja í þeim tilgangi að auka verðmæti fyrir hluthafa og skila þeim viðunandi arði. Framtíðarsýn KerfisþróunarFramtíðarsýn Kerfisþróunar er að vera í forystu í sölu og þróun fjölbreyttra hugbúnaðarlausna fyrir atvinnurekstur. Fyrirtækið vill laða til sín hæfa og metnaðarfulla starfsmenn sem hafa framsækni, áreiðanleika og þjónustu að leiðarljósi. Þróunarstefna Kerfisþróunar - Að hlusta vel á allar ábendingar og óskir viðskiptavina og koma þeim inn í staðlaðar lausnir eins og við verður komið. Meginsjónarmiðið er að breytingin gagnist mörgum og valdi sem fæstum óþægindum. - Ef ekki verður séð að ósk eins eða fárra viðskiptavina gagnist öðrum að ráði bjóðum við upp á þróunarsamvinnu og hugsanlega kostnaðarskiptingu - Sérlausnir eru unnar samkvæmt óskum. Gerð er þarfagreining og á grundvelli hennar er gerð kostnaðaráætlun og tilboð ef þess er óskað. |