Við afritum bókhaldið þitt fyrir 1.450,- á mánuði Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Oft hefur verið sagt að tölvugögn fyrirtækja séu orðin verðmætari en vélbúnaður þeirra á innan við þremur mánuðum. Öruggt og þægilegt aðgengi að tölvugögnum er nauðsynlegt í daglegum rekstri fyrirtækja.

Með Netafritun Kerfisþróunar eru gögn afrituð sjálfvirkt og geymd á öruggan hátt utan fyrirtækisins. Auðvelt er að endurheimta þau hvar og hvenær sem er í gegnum vafra.

Helstu kostir

  • Algjörlega sjálfvirk, tekur afrit af gögnum á þeim tíma sem óskað er.
  • Hægt er að endurheimta gögnin hratt og örugglega þegar þarf.
  • Sparar kostnað við afritunarstöðvar, segulbönd og hugbúnað sem annars er óumflýjanlegur.
  • Sparar þann tíma sem fer í umsýslu með afritun, eins og að skipta um spólur eða diska.

Netafritun Kerfisþróunar er aðgengileg í þægilegu vefumhverfi, á íslensku og ensku. Gögnin eru dulkóðuð og þjöppuð daglega og send gegnum Internetið með hámarksöryggi.

Netafritun Kerfisþróunar heldur utan um afritunarsögu og er hægt að endurheimta skrár og möppur frá því í gær, síðustu viku eða fyrir 60 dögum síðan, jafnvel ár aftur í tímann þegar þörf er á, allt eftir því hvernig viðskiptavinurinn óskar að útfæra lausnina.

Ef ekki er tekið afrit einhverra hluta vegna mun stjórnkerfi Netafritunar Kerfisþróunar senda tilkynningu þess efnis til viðeigandi aðila.

Verð á afritun pr. mánuð án vsk.

Gagnamagn Verð pr/GB Mánaðargjald
Allt að 1 GB 1.450,- 1.450,-
4 GB 598,- 2.390,-
7 GB 580,- 4.060,-
10 GB 569,- 5.690,-
20 GB 445,- 8.900,-
30 GB 393,- 11.790,-
40 GB 373,- 14.900,-
50 GB 338,- 16.900,-
> 50 GB Tilboð Tilboð