| Kerfisþróun flytur – aftur |
|
|
|
|
Aftur stöndum við í flutningum á stuttum tíma. Hádegismóarnir reyndust ekki jafn heppilegur staður og við höfðum gert okkur vonir um. Við höfum því flutt skrifstofur Kerfisþróunar að Síðumúla 28. Þar deilum við húsnæði með systurfélögum Kerfisþróunar, iCell og DataCell. Er það von okkar að þessi staðsetning henti viðskiptavinum okkar betur en allnokkrir þeirra eru reyndar staðsettir í næsta nágrenni við okkur í þessu vinsæla hverfi.
|