| Kerfisþróun 25ára |
|
|
|
Ný útgáfa af StólpaKæri viðskiptavinur Á næstu dögum sendum við út nýja útgáfu af Stólpa, útgáfu 2010.1. Meðal nýjunga er stuðningur við breytingar á tekjuskatti sem átt hefur sér stað á árinu auk fjölda annarra atriða, stórra og smárra. Lista yfir nýjungar má sjá hér. Nýja útgáfan verður send til allra skuldlausra viðskiptavina sem hafa viðhaldssamning. Gangið því frá greiðslum hið fyrsta til að tryggja ykkur eintak. Þeir sem óska eftir aðstoð okkar við að setja nýju útgáfuna inn eru beðnir um að láta okkur vita í svari við þessum pósti og við höfum samband um hæl til að finna heppilegan tíma. Í tilefni af nýju útgáfunni og í tilefni þess að Kerfisþróun var stofnuð fyrir sléttum 25 árum munum við halda partý hér á Skúlagötu 19, þann 20. nóvember næstkomandi. Boðið verður uppá léttar veitingar. Við vonumst til að sjá sem flesta frá þínu fyrirtæki en þetta verður auglýst betur þegar nær dregur. Bestu kveðjur, Starfsfólk Kerfisþróun Ísland ehf. |