|
|
|
Kerfisþróun flytur – aftur |
|
|
|
|
Aftur stöndum við í flutningum á stuttum tíma. Hádegismóarnir reyndust ekki jafn heppilegur staður og við höfðum gert okkur vonir um. Við höfum því flutt skrifstofur Kerfisþróunar að Síðumúla 28. Þar deilum við húsnæði með systurfélögum Kerfisþróunar, iCell og DataCell. Er það von okkar að þessi staðsetning henti viðskiptavinum okkar betur en allnokkrir þeirra eru reyndar staðsettir í næsta nágrenni við okkur í þessu vinsæla hverfi.
Nýtt heimilsfang er því: Kerfiþróun Ísland ehf. Síðumúla 28 108 Reykjavík |
|
|
Stólpi 2012 er kominn út. Ný útgáfa af Stólpa hefur nú verið send til viðskiptavina. Að venju hafa notendur Stólpa lagt okkur til mikið af góðum hugmyndum og segja má að það sem helst einkennir þessa útgáfu eru nýjungar sem stytta leiðir og auðvelda vinnuna. Sem dæmi má nú skoða hreyfingar, samninga, tilboð, verk oþh beint frá skuldunaut, hægt að setja viðhengi á hann t.d. Excelskjöl eða myndir, senda póst með einum músarsmelli ofl. Margir fagna sjálfsagt sjálfvirku uppgjöri virðisauka og að geta sent launaseðla í heimabanka í gegnum hvaða banka sem er. Þá hafa verið gerðar breytingar sem snúa að öryggi gagna, hægt að loka fyrir bókanir á ákv mánuði og eldri ár, einnig að hægt sé að bóka beint á söfnunarlykla ofl. Fjölmargt annað skemmtilegt er að finna í öllum einingum í nýjum Stólpa. Nánari upplýsingar um nýungarnar má finna á þjónustuvef Stólpa http://thjonusta.stolpi.is en einnig hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur í s.512-4400 ef þið óskið frekari upplýsinga. Þeir sem láta hýsa Stólpa hjá Kerfisþróun fá uppfærslu á næstu dögum. Að venju er sú vinna ekki skuldfærð sérstaklega. 
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 6 |