Námskeið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

 

Námskeið í Mars!

 

 

 

 

 
 

 


 

Á næstu vikum mun Kerfisþróun standa fyrir nokkrum námskeiðum fyrir notendur Stólpa. Námskeiðin verða haldin í húsnæði Kerfisþróunar að Skúlagötu 19.

Hvert námskeið tekur 3 klst. að undanskyldu námskeiði í Innheimtukerfi og í Stimpilklukkukerfi. Þau taka 1,5 klst. hvort.

Verð fyrir stakt námskeið er kr. 26.000,-
Verð fyrir námskeið í Innheimtukerfi og Stimpilklukkukerfi er
kr. 14.000,-

Ef tveir eða fleiri koma saman frá sama fyrirtæki er verðið 22.000,- pr. þáttakanda.

Ef sama fyrirtæki kaupir fleiri en eitt námskeið fæst hvert námskeið á
22.000,-

Þessi námskeið eru að sjálfsögðu styrkhæf hjá stéttarfélögunum.

Bókið strax í
s.512-4400 eða sendið á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  því fjöldi á hverju námskeiði er mjög takmarkaður.

 

 


 

Fjárhagsbókhald – Föstudaginn 25. Mars kl. 09:00

Hentar öllum sem nota Stólpa fjárhags-, skuldunauta- og/eða lánardrottnabókhald.

Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

  • Þátttakendur fái innsýn í algengustu þætti daglegrar bókhaldsvinnu.
  • Verði  færir um að stofna nýja og breyta reikningslyklum.
  • Merkja og færa fylgiskjöl í dagbók  og  reikninga í lánardrottnakerfi.
  • Læri að stemma af eftir hreyfingarlistum.
  • Útprentanir, og uppgjör virðisauka.
  • Tileinki sér fagleg vinnubrögð við bókhald.

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


Sölukerfi - mánudaginn 21. Mars kl. 09:00

Kjörið fyrir þá sem annast reikningsútskrift og til að fá yfirsýn yfir hina fjölþættu
möguleika kerfisins. Farið verður í notkun sölu-, birgða- og skuldunautakerfa og
sérstök áhersla lögð á reiknings- og tilboðsgerð. Verklegar æfingar og sýnd dæmi
um úrvinnslu úr sölusögu.

Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

  • Farið yfir stofnupplýsingar skuldunauta og birgða
  • Flokkun viðskiptamanna í markhópa
  • Reikningsútskrift og tilboðsgerð
  • Pantanir, samningar og uppskriftir
  • Söluuppgjör, skráning innborgana og reikningsyfirlit
  • Reikningar í einriti og rafrænt bókhald  

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Innheimtukerfi banka – fimmtudaginn 17. Mars kl. 09:00

Öllum sem eru að taka innheimtukerfið í notkun er ráðlagt að sækja þetta námskeið.
Kennd er notkun innheimtukerfis banka en notkun þess hefur farið hratt vaxandi á
undanförnum misserum. Bankarnir sjá um vaxtaútreikning. Innheimtuupplýsingar eru sendar vélrænt til bankans og upplýsingar um greiðslur eru lesnar vélrænt beint inn á viðskiptareikninga í Stólpa.

Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

  • Uppsetning kerfisins, HB66
  • Uppsetning greiðsluskilmála
  • Prentun greiðsluseðla
  • Sækja og senda innheimtukröfur
  • Ítrekunarbréf
  • Innheimtuaðgerðir og gerð skuldalista
  • Niðurfelling krafna 

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Launaútreikningur í Stólpa – föstudaginn 18. Mars kl. 09:00

Námskeið þetta er ætlað öllum þeim sem annast launaútreikning og hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.  Farið er í flesta þætti launaútreiknings og hinir
fjölþættu möguleikar kerfisins útskýrðir. 

Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

  • Taxtar, lífeyrissjóðir, séreignasjóðir og stéttarfélög
  • Launþegar skráðir og breytingar gerðar
  • Útreikningur og skráning launa
  • Skilagreinar skatta, lífeyrissjóða og stéttarfélaga
  • Rafræn skil staðgreiðslu og lífeyrissjóða
  • Netlaunaseðlar
  • Orlofsmeðhöndlun
  • Uppfærsla í fjárhag

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Stimpilklukkukerfi - þriðjudaginn 22. Mars kl. 09:00

Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að taka stimpilklukkukerfið í notkun eða þurfa
að kynna sér notkun þess. Farið í mætingareglur og uppfærslureglur. Farið yfir tengimöguleika við önnur kerfi og sýnd dæmi um skráningaraðferðir. 

Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

 

  • Uppsetning mætingareglna, flokka og helgidaga
  • Daglegar skráningar, leiðréttingar og útreikningur
  • Útlit kerfisins aðlagað óskum notanda
  • Fjarveru- og mætingaskrá
  • Notkun strikamerkja
  • Notkun skráningastöðva, handtölva, símtækja og kortalesara
  • Tenging við launakerfi og/eða verkbókhald

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Verkbókhald í Stólpa – miðvikudaginn 23. Mars kl. 09:00

Þegar verkbókhaldið er tekið í notkun gefst kjörið tækifæri til að endurskoða vinnubrögð. Farið verður í helstu þætti undirbúnings og kennt á þetta byltingar-
kennda hjálpartæki. Kennt er að stofna verk, verkliði, verktegundir og vörur í
verðskrá. Verkleg æfing í skráningu tíma og efnis. Að lokum eru gerð yfirlit með reikningi og farið í reikningsgerð.

Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

  • Stofnun skuldunauta, birgða og launþega
  • Verk, verkþættir, verktegundir og verkliðir stofnaðir
  • Dagleg vinnsla, skráning tíma og efnis
  • Útskriftir, framlegð og staða verka
  • Reikningsgerð úr verkbókhaldi
  • Fyrirspurnir og staða verka
  • Lokun verka

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Bifreiðakerfi fyrir verkstæði - fimmtudaginn 24. Mars kl. 09:00

Þetta námskeið er ætlað starfsmönnum bifreiðaverkstæða. Kennd er notkun bifreiðakerfisins fyrir reikningsgerð ásamt tengingu við Cabas, þjóðskrá,
bifreiðaskrá, verðskrá og önnur kerfi í Stólpa.

Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

  • Stofnun bifreiða og viðskiptamanna
  • Bókun bifreiða og gerð verkbeiðna
  • Dagleg skráning vinnu og varahluta
  • Varahlutapantanir
  • Reikningsgerð
  • Tenging við Cabas
  • Söluuppgjör
  • Stofna vöru

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Innkaupakerfi – föstudaginn 25. Mars kl. 09:00

Kennt er á birgða-, pantana-, toll- og verðútreikningskerfið. Unnin eru raunhæf dæmi og sýnt á hvern hátt innkaupakerfin nýtast til hagræðingar. Gerðar eru pantanatillögur, toll- og verðútreikningur sem skilar síðan vörum í birgðakerfið með nýjum verðum ef óskað er. Hentar vel þeim sem eru að taka í notkun SMT tengingu  við tollinn.

Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

Birgðakerfi

  • Vörur stofnaðar
  • Innkaupaforsendur
  • Birgðaeftirlit 

     
    Pantanakerfi
  • Pantanatillögur
  • Pantanir
  • Móttaka pantana og eftirlit  

    Tollskýrslugerð og verðútreikningur
  • Uppsetning tollkerfis, tollskrá og stofnupplýsingar
  • Tollskýrslugerð
  • Verðútreikningur, gengisskráning og verðbreytingar
  • Tenging við tollinn með SMT
  • Uppfærsla í birgðakerfið

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Sérnámskeið
Ef ekkert af ofangreindum námskeiðum hentar bjóðum við sérstök námskeið sniðin að þörfum ykkar fyrirtækis. Við höldum slík námskeið ýmist hjá Kerfisþróun eða hjá viðskiptavinum eftir hvað hentar. Hafðu samband við okkur í
s.512-4400 og kannaðu málið.