| Áramót |
|
|
|
|
Ekki er eftir neinu að bíða með að opna nýtt ár og er mælt með því að gera það strax á fyrsta degi nýs árs, best fyrr.
Skrá þarf nýtt ár sem núverandi bókhaldsár í Uppsetning, Skráning, Uppsetning bókhaldstímabila. Nýtt ártal er slegið inn. Eftir sem áður er hægt að bóka á eldri ár, t.d. lokafærslur frá endurskoðanda. Í lagi er að stofna eldra ár. Allar mánaða- og ársuppfærslur gerast á sjálfvirkan hátt í kerfinu og þarf notandinn ekkert að hugsa um slíkt. Aðvörun: Í netkerfum má enginn vera inn í kerfinu á meðan nýtt ár er stofnað. Kostur gefst á að endurreikna stöðu sem getur tekið nokkurn tíma. Hægt er að gera það síðar utan vinnutíma ef það hentar betur. FjárhagsbókhaldPrentið samanburðarskýrslu fyrir vsk og millifærið af öllum vsk-lyklum yfir á uppgjörslykilinn. Prentið áður virðisaukaskattsskýrslu fyrir allt árið og hvert tímabil fyrir sig. Skila þarf rekstrar- og efnahagsreikningi ásamt Rsk 1.04 uppgjöri, aðalbók og hreyfingalista. Ath. að Excel eru takmörk sett varðandi stæð þannig að hreyfingalista getur þurft að vista fyrst í Word.Hafið sér endurskoðunarmöppu fyrir eftirfarandi upplýsingar: Ljósrit af bankayfirlitum um áramótin. Ljósrit af yfirlitsblaði launaframtals. Ljósriti af álagningarseðli opinberra gjalda, innheimtu opinberra gjalda. Ljósriti af öllum nýjum lánasamningum og af síðustu afborgunum. Birgðatalningu ásamt helstu sundurliðunum ásamt aldursgreiningu birgða. Ljósriti af sölusamningum og kaupsamningum fastafjármuna, s.s. bíla og tækja. Upplýsingum um fasteignamat, brunabótamat fasteigna, vátryggingaverð eigna um áramótin. Ljósriti af hlutafjármiðum. Uppgjöri á greiddum fjármagnstekjuskatti. Ljósriti af vsk-skýrslum. Hafið samráð við endurskoðanda ykkar. SkuldunautabókhaldPrentið einfaldan stöðulista og gerið aldursgreiningu. Ef einhver á inneign er venjan að millifæra stöðuna á lánardrottnalykil.LánardrottnabókhaldPrentið einfaldan stöðulista og gerið aldursgreiningu. Ef inneign hefur myndast er venjan að millifæra stöðuna á skuldunautalykil. Verktakamiða eru prentaðir í Lánardrottnakerfinu og sendi verktökum. Í prentun launamiða er valið að vista í skrá. Þjónustsíða RSK er síðan ræst og skráin sótt. Hægt er að sjá strax hvort innlesturinn tókst.
BirgðakerfiGerða þarf birgðauppgjör um áramót og leiðrétta stöðu birgða í fjárhagsbókhaldi. Þetta þarf einnig að gera mánaðarlega eða við milliuppgjör. Sérstakur listi, Birgðatalning, er ætlaður vegna talninga. Veljið lager, vöruflokk eða staðsetningu þeirra vara sem telja á. Þegar listinn er prentaður er gefinn kostur á að vista listann sem bigðaskráningadagbók. Ef það er gert þarf einungis að skrá rétt magn á þeim vörum sem breyta þarf. Talning þarf að fara fram strax en skrá má breytingar síðar á viðkomandi dagsetningu, þ.e. þó byrjað sé að selja eða skrá innkaup.SölukerfiEina útskriftin sem þarf að gera samkvæmt lögum er söluppgjör í sölukerfinu og það skal áritað af ábyrgðarmanni. Uppgjörið skal prenta reglulega sem getur þýtt daglega, mánaðarlega eða við vsk-uppgjör, allt eftir aðstæðum. Prentið líka sölugreiningu eftir mánuðum og berið saman við bókhaldið.LaunakerfiGera þarf ársuppgjöri í launakerfinu áður en fyrstu laun á nýju ári eru reiknuð. Verið áður búin að stofna nýtt ár í bókhaldinu. Prentið launamiða og launaframtal. Eina sem gera þar er síðan að ýta á takkann Ársuppgjör.Þeir sem nota Vefskil þurfa ekki að skila launaframtali. Prentið það samt og stemmið af launin við fjárhagsbókhaldið. Handreiknið líka tryggingagjaldið og berið saman við bókhaldið (Öll laun að viðbættu mótframlagi atvinnurekenda. Eina sem er undanskilið eru dagpeningar). Orlofsskuldbindingar: Prenta þarf stöðu yfir orlofsskuldbindingu um áramót og bera saman við bókhaldið. Hægt er að láta kerfið gjaldfæra orlofsskuldbindingu jafn óðum og er þá merkt við viðkomandi bókhaldslykla í Launaliðir. Ef ekki er merkt við neina lykla þá safnar kerfið einungi upp ógreiddum dagvinnutímum. VerkbókhaldPrenta þarf stöðulista verka og leiðrétta stöðu í fjárhagsbókhaldi.Endurreikna stöðurFærslur sem færðar eru utan bókhaldsmánaða eða ára færir kerfið jafnframt á lyklana Hagnaður/tap ársins og Óráðstafað eigið fé. Ekki þarf að bóka lokatölu Hagnaðar/tap ársins því kerfið meðhöndlar yfirfærsluna sjálfvirkt. Mikill fjöldi færslna getur myndast á fyrrgreindum lyklum. Með því að fara í Bókhaldskerfi, Uppsetningu, Vinnslur og Endurreikna stöður verður til ein tala fyrir hvert tímabil. Þetta getur einnig verið ráðlegt að gera ef villa myndast í bókhaldi.Athugun á bókhaldiVið uppgjör er góð regla að taka hreyfingarlista frá 01.01.XX, eða síðustu mánaðamótum, til 31.12.XX á skjá og skoða niðurstöðutölur en þær eiga að stemma. Á sama hátt þarf að stemma skuldunauta og lánardrottna við uppsöfnunarlyklana í bókhaldinu. Sjá Mismunir í Efnisleit.RSK 1.04Þeir sem ljúka við sitt bókhald sjálfir senda Ríkisskattstjóra skránna og hana má einnig lesa inn í hvaða framtalsforrit sem er. Veljið RSK 1.04 skrá í hreyfingalista. Eftirfarandi þarf að aðgæta:-Bóka þarf hagnað/tap ársins á óráðstafað eigið fé, þ.e. á lykilinn ,,Upphafsstaða”. -Bæta við eignaskrá. -Færa inn iðnaðarmálagjaldsstofn. -Færa inn greiddan fjármagnstekjuskatt. -Fylla út vsk.töflu og færa inn handfærðan vsk. -Fylla út sundurliðun í launaframtal. -Færa inn sundurliðunarblað viðeigandi upplýsingar. LokafærslurÞegar uppgjör liggur fyrir og ársskýrslan kemur frá endurskoðandanum þarf að færa lokafærslur, s.s. leiðréttingarfærslur og afskriftir. Flestir endurskoðendur láta fylgja bókunarblað yfir þær færslur sem þeir hafa gert. Ef slík bókunarbeiðni fylgir ekki þarf að bera ársskýrsluna saman við bókhaldið í Stólpa. Ef endurskoðandinn er með Stólpa fyrir Windows getur hann sent dagbókina með lokafærslum í tölvupósti og má lesa þær beint inn. (Hægt er að senda bæði uppfærðar sem og óuppfærðar dagbækur). Þegar bókað er á virðisaukaskattslykla þarf að bóka upphæðina með virðisauka og mótbóka virðisaukann sjálfan á viðkomandi uppgjörslykil.Prenta þarf dagbók til að sjá upphæð vsk. á inn og útskattslyklum. Í sömu dagbók þarf að millifæra stöður inn- og útskattlykla yfir á uppgjörslykil og á þar að standa það sem er óuppgert. Gæta þarf þess einnig að upphæðir á vsk. lyklum séu réttar. Prentið dagbókina og yfirfarið hvort rétt upphæð sé bókuð og eins hvort bókað sé á réttan lykil. (Hægt er líka að aftengja vsk. með því að fara í Uppsetning og Uppsetning virðisauka og setja 0-prósentu á meðan fært er). |