Kerfisþróun

Kerfisþróun Ísland ehf er fyrirtækið að baki Stólpa viðskiptahugbúnaði sem er sveigjanlegt bókhalds- og upplýsingakerfi með lausnir fyrir flestar gerðir atvinnurekstrar. Viðskiptavinir geta valið þau kerfi sem henta, bætt við kerfum síðar og stækkað þau eftir þörfum.

Kerfisþróun Ísland ehf. - Öryggi, reynsla og fagmennska í aldarfjórðung. Traustur og áreiðanlegur viðskiptafélagi.

Útgáfa 2010.2 - Leiðbeiningar
Miðvikudagur, 30. desember 2009 11:21

Hafið samband við skrifstofu Kerfisþróunar til að fá eintak af útgáfu 2010.2

ATH:
Eftir uppfærslu þarf að setja inn handvirkt VSK breytingar.
Leiðbeiningar um breytingar á VSK eru að finna á þjónustuvef okkar.


Launakerfi:

Skattbreytingar

Eftir að búið er að setja nýtt launakerfi inn þarf að fara inn í það og þar í Stýriupplýsingar. Í flipanum Skattar og önnur hlutföll þarf að setja inn viðmiðunarupplýsingar fyrir hin nýju skattþrep.
Í Hátekjuskattur 1 % er sett 2,90 og í Viðmiðun hátekjuskatts 1 er sett 200.000,-.
Í Hátekjuskattur 2 % er sett 8,90 og í Viðmiðun hátekjuskatts 2 er sett 650.000,-.
Staðgreiðsluprósentan er 37,22 og persónuafsláttur 44.205,-.
Því næst þarf að fara í hvern launþega fyrir sig og þar í flipann Laun og greiðslur og setja þar viðeigandi gildi í reitina Laun frá öðrum og Laun maka. Ef launþegi er með yfir 650.000 í laun á að skrá 650.000 í reitinn Laun maka því leiðrétting vegna samsköttunar hjóna verður gerð við endurreikning álagningar.

Sjálfgefinn launaseðill birtir ekki tekjuskattsprósentur við skattalínuna en hægt er að velja nýja útgáfu af launaseðli sem birtir stighækkandi prósentur eftir því sem við á fyrir hvern launþega. Til að virkja hann þarf að fara í Stýriupplýsingar og þar í flipann Annað og velja Launaseðill m/ skattprósentum í gluggann Tegund launaseðils.

Til athugunar vegna virðisaukaskýrslu fyrir tímabil á árinu 2009.

Vegna breytinga á virðisauka þarf að hafa í huga að þegar búið er að breyta vsk í 25,5 þá notar Stólpi nýju prósentuna til að finna “Reiknaðan virðisauka” þótt verið sé að prenta virðisaukaskýrslu fyrir tímabil á 2009. Það þarf ekki að óttast að færslur sem voru færðar 2009 með 24,5 vsk hafi breyst heldur er eingöngu um útreikning í skýrslunni að ræða.

Til að fá rétta vsk skýrslu má velja eftirfarandi leiðir:
  1. Taka tölur sem eru undir “Færður virðisauki” og handfæra inn á skýrsluna.
  2. Breyta vsk prósentu í “Uppsetning virðisauka” meðan verið er að prenta skýrsluna. Það þarf að passa að ekki séu gerðir reikningar eða færðar dagbókarfærslur á meðan þetta er gert.
  3. Sækja nýja útgáfu af Stolpi.zip.

Tvísmellið á Stolpi.zip og dragið Stolpi.mdb út á Skjaborðið. Færið skrána yfir í Stólpa forrita möppuna (Vanalega C:\Stowin) og yfirskrifið það sem er til fyrir.